Persónuverndarstefna
Drög, síðast uppfært 3. nóvember 2026.
Ábyrgðaraðili vinnslu er Þröstur Óskarsson (gjafo@gjafo.is). Stefnan lýsir hvaða persónuupplýsingar Gjafó geymir, af hverju, hve lengi og hverjum þeim er miðlað, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Hvað við geymum
- Listahöfundur: heiti lista, tilefni, dagsetning, nafn (valkvætt) og netfang (valkvætt). Netfangið er notað til að senda þér stjórnhlekk listans.
- Óskir: vöruheiti, verð, mynd, hlekkur og athugasemd sem þú skráir.
- Gefandi sem tekur frá: nafn (valkvætt) og netfang (valkvætt). Nafnið sést öðrum gefendum á listanum en ekki eiganda listans. Netfangið er eingöngu notað til að senda hlekk til að merkja gjöf keypta eða hætta við, og eina áminningu fyrir viðburðinn ef gjöfin hefur ekki verið merkt keypt.
- Póstlisti: ef þú skráir netfang á fermingarsíðunni notum við það eingöngu til að senda áminningu um fermingartímabilið. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með því að svara póstinum eða skrifa okkur.
- Smellir: þegar smellt er á „Fara í verslun“ skráum við hvaða vara og hvaða verslun, og tímasetningu. Við geymum ekki IP-tölur og setjum engar kökur við það.
Kökur
Gjafó setur engar kökur í jólaútgáfunni. Vafrinn þinn man listana þína í staðbundinni geymslu (localStorage) á tækinu sjálfu svo þú finnir þá aftur; þær upplýsingar fara ekki til okkar. Þegar þú ferð í verslun í gegnum hlekk getur verslunin eða affiliate-netið (t.d. Awin eða Adtraction) sett köku á sínum vef til að eigna okkur söluna. Um það gilda skilmálar viðkomandi aðila.
Hverjum er miðlað
- Cloudflare (hýsing, gagnagrunnur og móttaka tölvupósts), samkvæmt vinnslusamningi.
- Resend (sending tölvupósts), samkvæmt vinnslusamningi.
- Affiliate-net og verslanir fá upplýsingar um smell og auðkenni lista (ekki nafn eða netfang) til að reikna þóknun.
Við seljum aldrei persónuupplýsingar.
Hve lengi
Listum og bókunum er eytt þegar eigandi eyðir lista, og í síðasta lagi 18 mánuðum eftir dagsetningu viðburðar. Smellaskráning er geymd í allt að 24 mánuði vegna uppgjörs við verslanir, án persónugreinanlegra upplýsinga.
Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu og eyðingu. Hafðu samband á gjafo@gjafo.is. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
Listar barna
Lista barns á foreldri eða forráðamaður að stofna. Listar eru eingöngu aðgengilegir með deilihlekk og birtast hvorki í leit á vefnum okkar né leitarvélum.