Gjafó Búa til lista

Skilmálar

Drög, síðast uppfært 3. nóvember 2026.

  1. Gjafó er ókeypis þjónusta til að búa til og deila gjafalistum. Við seljum engar vörur; kaup fara fram hjá viðkomandi verslun og um þau gilda skilmálar hennar.
  2. Upplýsingar um vörur (heiti, verð, mynd) eru sóttar sjálfkrafa eða skráðar af notanda og geta verið rangar eða úreltar. Athugaðu verð og framboð hjá versluninni.
  3. Hlekkir í verslanir geta verið rakhlekkir (affiliate) og við gætum fengið þóknun af kaupum. Það hefur ekki áhrif á verð.
  4. Sá sem hefur stjórnhlekk lista getur breytt honum og eytt. Geymdu hann vel og deildu honum ekki. Deilihlekkinn mega allir sjá sem fá hann.
  5. Óheimilt er að nota þjónustuna til að birta ólöglegt, meiðandi eða villandi efni. Við áskiljum okkur rétt til að fjarlægja slíkt efni.
  6. Þjónustan er veitt eins og hún er. Við berum ekki ábyrgð á tjóni vegna þess að gjöf var keypt tvisvar, frátekning féll niður eða þjónustan lá niðri.
  7. Um skilmálana gilda íslensk lög.